Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar andlát

Eftirfarandi tilkynningu sendi lögreglan á Norðurlandi eysta frá sér  nú rétt í þessu.
Klukkan 04:30 aðfaranótt mánudags var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð að fjölbýlishúsi á Akureyri.
Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang var vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og hófust endurlífgunartilraunir þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin á vettvangi.
 
Grunur er um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur lögreglan hafið rannsókn. Í íbúðinni var annar einstaklingur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins og nýtur réttarstöðu sakbornings.
 
Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verður lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
 
Rannsókn málsins er á frumstigi og mikil vinna framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu

Athugasemdir

Nýjast