Engar heimsóknir vegna kórónuveirunnar

Samherji hefur beint þeim tilmælum til starfsmanna sinna að engar heimsóknir séu leyfðar í starfsstöðvar fyrirtækisins um óákveðinn tíma vegna óvissuástands sem ríkir vegna kórónuveiru, COVID-19. Þá hefur starfsfólk verið hvatt til þess að draga úr ferðalögum eins og kostur er og sleppa alfarið ferðalögum til skilgreindra áhættusvæða þar sem COVID-19 faraldurinn geisar og smit er talið útbreitt. Er þetta gert í samræmi við tilmæli Embættis landlæknis.


Athugasemdir

Nýjast