07. júní, 2015 - 13:23
Fréttir
Mireya Samper
Mireya Samper hefur opnað sýninguna Endurvarp í Listasafninu á Akureyri. Sýningin endurspeglar ferli og áhrif sem Mireya hefur unnið með og upplifað, bæði á Íslandi og í Japan, undanfarin misseri. Fjallað er um innri og ytri kosmós, óendanleikann, eilífðina, endurtekninguna og hringrásina innri og ytri hringrás.
Á sýningunni er að finna innsetningu, tví- og þrívíð verk eftir Mireyu ásamt verkum eftir japönsku gestalistamennina Tomoo Nagaii sem samdi hljóðverk með innsetningunni, og vídeó verk eftir Higuma Haruo unnið uppúr samvinnu hans og Mireyu með sömu innsetningu.
Innsetningin er einskonar íhugunarrými gestum sýningarinnar býðst að fara inn í rýmið, setjast eða leggjast og gefst þar tækifæri til íhugunar. Þá er einnig japanska gjörningalistakonan Kana Nakamura þátttakandi í sýningunni. Sýningarskrá kemur út í tilefni sýningarinnar.
Sýningin stendur til 16. ágúst og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis.