Miðaldadagar á Gásum verða haldnir í 12. sinn um helgina, frá föstudegi til sunnudags 17. 19. júlí. Opið verður frá 11-18 alla dagana. Á Miðaldadögum er reynt að endurskapa lífið eins og það gæti hafa verið á þessum forna verslunarstað í kringum árið 1300. Þarna var ein mesta hafskipahöfn Íslands í 400 ár og það er til mikið af heimildum um lífið á Gásum. Það verður að vanda mikið um handverk, bókfellsgerð, reipissláttur, kolagerð og eldsmíði.
Þarna er hægt að æfa sig í bogfimi og meðferð þeirra vopna sem sjálfsagt hafa valdið hvað mestum skeinum á Íslandi fyrr á öldum, nefnilega grjóthnullungum. Nýnæmið að þessu sinni er fólgið í dönskum klukkusteypi, Michael Sasserson, sem ætlar að steypa klukku úr bronsi með aðferðum miðaldamanna. Klukkan á að fara í miðaldakirkju sem verður reist á næstu árum að Gásum. Það verður líka byrjað á bátasmíðaverkefni sem er nokkuð óvanalegt.
Þetta er verkefni sem er áætlað að taki 10-15 ár og felst í því að smíða bát meðan á Miðaldadögum stendur. Aðeins verða notuð miðaldaverkfæri við smíðina og verða þau flest smíðuð af eldsmiðum á Gásum. Þannig verður bara unnið í bátnum þessa þrjá-fjóra daga á ári, enda er markmiðið að sýna verklagið og verkfærin fremur en að klára bátinn.