Endurbætur við Listasafnið kosta 576 milljónir

Framkvæmdir við endurbætur hófust í dag.
Framkvæmdir við endurbætur hófust í dag.

Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa samið við ÁK smíði um framkvæmdir við endurbætur á Listasafninu á Akureyri. Verksamningurinn hljóðar upp á rúmar 413 milljónir en heildarkostnaðurinn við verkið er áætlaður rúmar 576 milljónir. Inni í þeirri tölu er kostnaður við hönnun og ófyrirséður kostnaður. Búið er að greiða nú þegar 40 milljónir í hönnunarkostnað.

Framkvæmdir við endurbæturnar hófust í dag og er áætlað að verkinu ljúki þann 1. júní 2018. Eins og Vikudagur hefur fjallað um er m.a. áætlað að Ketilhúsið verði hluti af Listasafninu.

Í fundargerð umhverfis-og mannvirkjaráðs um endurbætur í Listagilinu segir að húsnæðið uppfylli ekki kröfur um eldvarnir, heilbrigðismál og aðgengismál og þarf m.a. að endurnýja allar vatns- og raflagnir og loftræstikerfi.  

Áætlað er að hafa opinn kynningarfund á framkvæmdinni miðvikudaginn 31. maí nk. kl 17.00 í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu.

Nýjast