Ekki séu gerðir starfslokasamningar þegar starfsmenn lífeyrissjóðsins hætta

Athyglisverðar tillögur voru samþykktar á félagsfundi málmiðnarmanna.
Athyglisverðar tillögur voru samþykktar á félagsfundi málmiðnarmanna.

Á félagsfundi hjá Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri í vikunni voru samþykktar tillögur til stjórnar FMA og Sameinaða lífeyrissjóðsins varðandi málefni lífeyrissjóðsins. Ástæða samþykktanna er fyrst og fremst áhugi félagsmanna til að hafa áhrif til góðs á starfsemi sjóðsins bæta starfssemi hans og tengja starfsemi hans sem best við sjóðsfélaga, eins og segir á vef félagsins. Á fundinum hafði framkvæmdarstjóri Sameinaða Lífeyrissjóðsins Kristján Örn Sigurðsson framsögu. Tillögurnar sem samþykktar voru eru svohljóðandi:

  1. Stjórn félagsins fái upplýsingar um fjárfestingar sjóðsins tvisvar á ári
  2. Stjórnarmenn sitji ekki lengur en sex ár í stjórn sjóðsins, tryggt sé að einn stjórnarmaður launþega sé af landsbyggðinni.
  3. Stjórnin sé einungis skipuð stjórnarmönnum sem eru sjóðsfélagar Sameinaða lífeyrissjóðsins
  4. Ekki séu gerðir starfslokasamningar þegar starfsmenn sjóðsins láta af störfum.
  5. Stjórn Sameinaða Lífeyrissjóðsins beiti sér af alefli fyrir því að réttindi sjóðsfélaga verði eigi lakari en lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna.
  6. Stjórnarmenn lífeyrissjóðsins sitji ekki í stjórnum fyrirtækja né sjóðum sem hann fjárfestir í.

Nýjast