Matargjafir Akureyri og nágrenni nefnist lokuð Facebook síða sem Sigrún Steinarsdóttir og Sunna Jakobsdóttir stofnuðu fyrir tæplega ári síðan. Síðan eru ætluð til aðstoðar fyrir þá sem ekki eiga fyrir mat og eru um 800 meðlimir skráðir á síðunni. Sigrún segist merkja mikla aukningu í mataraðstoð og í síðasta mánuði hafi þær afgreitt um þrjár beiðnir á dag.
Við héldum að desember yrði stærsti mánuðurinn og svo myndi þetta minnka, en staðreyndin er sú að þetta hefur hins vegar ekkert dottið niður síðan þá. Það er greinilegt að margir eru í vandræðum og neyðin er víða, segir Sigrún, en nánar er rætt við hana í prentútgáfu Vikudags.
-þev