Ég hef lent í ýmsu sem fær mig til þess að hætta að efast"
Hann er fæddur og uppalinn í Dalasýslu en fluttist til Akureyrar árið 2003. Síðan þá hefur hann lagt sitt af mörkum í tónlistar- og menningarlífi bæjarins. Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju, var valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 2011. Hann er í sambúð með Elvý Hreinsdóttur og samtals eiga þau fimm börn; Eyþór á tvær dætur en Elvý þrjá stráka.
Vikudagur hitti Eyþór og spjallaði við hann tónlistina, lífið, áhuga hans á fuglum og ljósmyndun og hvernig afstaða hans til trúarinnar breyttist þegar amma hans lést. Nálgast má viðtalið í prentútgáfu Vikudags.