Drusluganga gegn kynferðisofbeldi

Frá Druslugöngunni í fyrra.
Frá Druslugöngunni í fyrra.

Drusluganga verður á Akureyri í dag kl. 14:00 og verður gengið frá Akureyrarkirkju niður Gilið og inn á Ráðhústorg. Þetta er fjórða árið sem Druslugöngur fara fram víða um heim og hafa Akureyringar frá upphafi staðið fyrir Druslugöngu og þátttakan farið mjög vaxandi milli ára. Upphaf Druslugöngunnar má rekja til Toronto í Kanada, þar sem fyrsta gangan var farin 29. apríl 2011. Þá var gangan hluti af viðbrögðum samfélagsins við orðum lögreglumanns sem sagði að konur ættu að forðast það að klæða sig eins og druslur ef þær vildu ekki verða fórnarlömb nauðgana.

Orðin vöktu mikla reiði, sérstaklega hjá konum sem sögðust vera orðnar þreyttar á því að vera kúgaðar með ásökunum tengdar klæðaburði sínum. Gangan í Toronto var mjög fjölmenn og í kjölfarið var stofnað til Druslugangna um allan heim og þar með talið á Íslandi þar sem Druslugöngur voru farnar 23. júlí á Akureyri, Reykjavík, Ísafirði og í Reykjanesbæ.

Druslugangan er orðin að föstum punkti þar sem samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stendur með þolendum gegn gerendum. Druslugangan leggur höfuðáherslu á að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur og hafna þeirri gamaldags og röngu hugsun að einblína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem réttlætingu á kynferðisglæp. Það er ekki til nein réttlæting. 

Nýjast