Draumurinn er að verða heimsmeistari

Jón Kristinn Þorgeirsson
Jón Kristinn Þorgeirsson

„Ég byrjaði að tefla í september 2008, þá nýorðinn níu ára. Pabbi hefur verið talsvert í skák og ég fór að fikta við þetta og fékk bakteríuna,“ segir Jón Kristinn Þorgeirsson, 14 ára nemandi í Lundarskóla á Akureyri. Hann er yngsti skákmeistarinn í 76 ára sögu Skákfélags Akureyrar og segist tefla á hverjum degi.

„Hins vegar fer það eftir því hvaða dagur er hversu mikið ég tefli. Ég fer á æfingar á miðvikudögum og keppi á mótum á fimmtudögum, þannig að þessir tveir dagar fara mikið í skákina,“ segir Jón.

„Draumurinn er að verða heimsmeistari.“ Jón liggur ekki á svörum þegar hann er spurður út í helstu fyrirmynd í skákinni. „Það er Bobby Fischer.“

Nánar er rætt við Jón Kristinn í prentútgáfu Vikudags

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast