Dræmt á grásleppunni

„Veiðin hefur verið frekar dræm, það er dauft yfir þessu," segir Jón Þorsteinsson sem gerir út á grásleppu frá Grenivík.  Síðustu grásleppuvertíðir hafa verið góðar, en nú bregður svo við að lítið veiðist.  Fjórir bátar gera út á grásleppu frá Grenivík. Sunnan- og suðvestanáttir hafa verið ríkjandi það sem af er vertíð. „Veðrið hefur að mestu verið í lagi, tíðin góð og alltaf hægt að komast á sjó, það vantar bara grásleppuna," segir Jón.  

„Þetta er frekar kraftlítið skulum við segja, ætli það orð lýsi ekki þessari vertíð best," segir hann.  Hann segir allt útlit fyrir að vertíðin verði ekki neitt sérstök þegar upp er staðið en menn ætli sér þó að þrauka og halda áfram í þeirri von að úr rætist.   Verð fyrir hrogn er lægra en var í fyrra, en á vertíðinni þá fór saman hátt verð og góð veiði.  „Það er ágætis verð í boði, en samt lægra en var í fyrra og kaupendur halda frekar að sér höndum, vilja ekki gera samninga fyrirfram um mikið magn," segir Jón.

Nýjast