Disztl skrifaði undir hjá Þór

Ungverski framherjinn David Disztl gerði í gær samning út árið við knattspyrnufélag Þórs. Disztl hefur verið til reynslu hjá félaginu í vikutíma, en þessi fyrrum KA-maður verður í eldlínunni með Þór í Pepsi-deildinni í sumar.

Við sama tækifæri skrifaði Kristján Sigurólason undir tveggja ára samning við Þór. Kristján er uppalinn Þórsari en hefur leikið í Noregi undanfarin ár. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.

Nýjast