Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin þrjú ár. Fjögur efstu lið í N1- deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki.
Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði og er miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri,
en frítt inn fyrir 15 ára og yngri. Aðgöngukort HSÍ, A og B, gilda á leikina en ekki C kortin.
Leikjaplanið er eftirfarandi:
Mánudagur 27.desember 2010
Deildarbikar kvk - kl.16.00 - Undanúrslit
Deildarbikar kvk - kl.17.15 - Undanúrslit
Deildarbikar ka - kl.19.30 - Undanúrslit
Deildarbikar ka - kl.21.15 - Undanúrslit
Þriðjudagur 28.desember 2010
Deildarbikar ka - kl.18.15 - Úrslit
Deildarbikar kvk - kl.20.00 - Úrslit