Sennilega hafa þó ekki nærri allir áhugaverðir viðburðir ratað inn á vefinn enn og því er rétt að benda fólki
á að fylgjast með því sem kann að bætast við vefinn næstu daga. Á vefnum er einnig vísað á ýmsa sérvefi um
Jónas Hallgrímsson, þar er hugmyndabanki kennara og yfirlit um þá sem hlotið hafa hin árlegu Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og aðrar
viðurkenningar á degi íslenskrar tungu.
Mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir Borgarnes
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í Borgarnesi á degi íslenskrar tungu 2010.
Hún fer í Menntaskóla Borgarfjarðar um hádegisbil, ræðir við nemendur og starfsfólk og skoðar sýningu á vegum
Grunnskólans í Borgarnesi og menntaskólans. Hún heimsækir leikskólann Klettaborg kl. 14.30, þá Skallagrímsgarð og
íþróttamiðstöðina. Loks verður hátíðardagskrá, öllum opin, í Landnámssetrinu kl. 17-18.
Mennta- og menningarmálaáðherra veitir Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og tvær sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við
íslenska tungu.
Hátíðardagskrá í Landnámssetri Íslands kl. 17:
Tónlist
Upplestur (verðlaunahafi úr Stóru upplestrarkeppninni)
Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra
Mennta- og menningarmálaráðherra afhendir tvær viðurkenningar á degi íslenskrar tungu
Ávörp viðurkenningarþega
Tónlist
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent
Ávarp verðlaunahafa
Upplestur (verðlaunahafi úr Stóru upplestrarkeppninni)
Dagskrárslit - Veitingar í boði mennta- og menningarmálaráðuneytis
Uppáhaldsnýyrði
Mjólkursamsalan kynnir nýtt málræktarátak á mjólkurfernum landsmanna. Þátttakendur velja uppáhaldsnýyrði sitt á
vefnum www.ms.is og geta unnið til verðlauna ef þeir skrá sig. Dregið verður úr pottinum á degi íslenskrar tungu.
Nýyrði Jónasar á Akureyri
Svavar Sigmundsson fjallar um nýyrði Jónasar Hallgrímssonar í Menntaskólanum á Akureyri í samvinnu Menningarfélagsins Hrauns í
Öxnadal, Menntaskólans á Akureyri og Háskólans á Akureyri á gamla sal Menntaskólans á Akureyri kl. 17. Allir eru velkomnir.
Jónasarvaka í Þjóðmenningarhúsinu. Árleg Jónasarvaka Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal og
Þjóðmenningarhússins verður í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu og hefst klukkan 17.15. Vilborg Dagbjartsdóttir les nokkur
eftirlætisljóða sinna eftir Jónas, Jón Karl Helgason flytur erindið: Bjarni eða Jónas? Kanónísering þjóðskálds
á 19. öld. Þar verður einnig fjöldasöngur og Karlakór Reykjavíkur, eldri félagar, syngja nokkur lög. Allir eru velkomnir.
Með íslenska tungu á vör - Maraþonlestur
Ársafn Borgarbókasafns heldur upp á dag íslenskrar tungu með maraþonlestri frá kl. 11-17. Lesturinn ber yfirskriftina „Með íslenska tungu
á vör" og verður gestum boðið að lesa úr sínum uppáhalds bókum. Starfsfólk Ársafns tekur á móti gestum
íklætt þjóðbúningum og býður upp á kaffi og ástarpunga. Allir eru velkomnir á safnið til að lesa eða hlusta.
Hátíðardagskrá Mímis og Mjólkursamsölunnar
Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum, heldur dag íslenskrar tungu hátíðlegan með veglegri dagskrá í
samstarfi við Mjólkursamsöluna þann 16. nóvember. Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu milli kl.
17 og 19. Fyrirlestrar, skemmtiatriði og léttar veitingar. Heiðursgestur er Helga Kress. Allir eru velkomnir.
Íslenskuverðlaun í Reykjavík
Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur verða veitt í Ráðhúsinu á degi íslenskrar tungu kl. 16. Verndari verðlaunanna er
frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti. Verðlaunin eru veitt grunnskólanemum, sem hafa skarað fram úr á ýmsa vegu, í
lestrarfærni, skapandi skrifum, ljóðsmíðum og framsögn, við hátíðlega athöfn. Frú Vigdís flytur ávarp og
skólakór Laugarnesskóla syngur. Allir eru velkomnir.
Loðmar og málrækt
Bókaútgáfan Salka stendur fyrir uppákomu á degi íslenskrar tungu í tilefni útgáfu bókarinnar Loðmar. Í bókinni,
sem fjallar um Loðmar er leggur af stað í langferð, eru bráðskemmtilegar orðskýringar og bókbúatal. Orðskýringarnar lúta
að orðum sem sum hver eru ekki lengur algeng í íslenskum barnabókum og eru jafnvel að falla í gleymsku, eins og njörva niður og vera
vægðarlaus. Höfundar, Embla Vigfúsdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir, lesa upp úr bókinni og segja frá tilurð hennar
og skringilegheitum í Skipholti 50 c kl. 12.45. Allir eru velkomnir.
Stóra upplestrarkeppnin í grunnskólum
Stóra upplestrarkeppnin fer nú af stað í 15. sinn og hefst formlega á degi íslenskrar tungu, eldri börnin koma í bekki yngri barna og lesa upp
sögur og ljóð, verðlaunahafar úr upplestrarkeppni síðasta árs lesa upp, ljóða- og smásagnasamkeppni, ljóð Jónasar
Hallgrímssonar kynnt og íslenskir málshættir sérstaklega athugaðir.
Dagur íslenskrar tungu í grunnskólum
Í Hamraskóla koma nemendur saman á sal og syngja m.a. skólasöng Hamraskóla sem var frumfluttur á degi íslenskrar tungu í fyrra.
Þá verður upplestur, nemendur fá afhentar viðurkenningar fyrir lestrarsprett sem hófst viku fyrr og nemendur úr unglingadeild lesa ljóð og
örsögur. Verkefnið Lestrarvinir hefst og nemendur fjórða bekkjar lesa fyrir leikskólabörn á Klettaborg.
Dagur íslenskrar tungu í leikskólum
Vilborg Dagbjartsdóttir rithöfundur les og spjallar við leikskólabörn á Lindarborg 16. nóvember í tilefni dags íslenskrar tungu. Dagur
íslenskrar tungu er opinber fánadagur.