Nýtt leikverk æft hjá Leikfélagi Akureyrar

Sek er  leikrit sem byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir Hrafnhildur upp spennandi atburðarás sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart.

Hrafnhildur Hagalín er eitt af fremstu leikskáldum landsins. Hún hlaut leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1992 fyrir leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt þvi að hljóta Norrænu Útvarpsleikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús. Önnur leikrit Hrafnhildar eru: Hægan Elektra (Þjóðleikhús 2000), Norður (Þjóðleikhús 2004), Herbergi 408 (Herbergi 408 2010) og Jöklar (Herbergi 408 2012).

Leikstjórinn, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, útskrifaðist vorið 2011 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Hún steig sín fyrstu skref sem leikstjóri í útskriftarverkefni sínu Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugene Ionesco og setti einnig upp Ég er vindurinn eftir Jon Fosse í Þjóðleikhúskjallaranum 2012. Hún leikstýrir nú í fyrsta sinn hjá Leikfélagi Akureyrar.  

Leikarar í verkinu eru Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, Hilmir Jensson og Þráinn Karlsson. Leikmynd og búningar eru í höndum Stellu Önnudóttur Sigurgeirsdóttur. Lýsingu hannarJóhann Bjarni Pálmason og tónlistina semur Þorvaldur Örn Davíðsson, nemandi í tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands.

Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu 4. október.

Nýjast