Byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ÁTVR fellt úr gildi

Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa Akureyrar frá 17. nóvember sl. um að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið að Hólabraut 16 á Akureyri. Framkvæmdir við viðbygginguna áttu að vera hafnar í kjölfar útboðs en óvíst er hvert framhaldið verður.  

Helgi Snæbjarnarson formaður skipulagsnefndar Akureyrar segir óljóst á þessu stigi hver næstu skref verða. Hann segir að vera sé að skoða málið og vonast til að málið skýrist á næstu dögum. Það voru íbúar við Laxagötu sem sendu kæru til úrskurðarnefndar þá ákvörðun að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið að Hólabraut 16. Á málsrökum kærenda kemur m.a. fram að umdeild byggingaráform séu í trássi við þá staðreynd að um sé að ræða svæði með íbúðarhúsum.  Augljóst sé að rekstur vínbúðar á umræddum stað eigi enga framtíð fyrir sér nema áform séu uppi um að ráðast í að rífa fleiri íbúðarhús á svæðinu til að uppfylla bílastæðaþörf fyrir stærri verslun.  Með þessum áformum sé freklega gengið gegn rétti íbúa svæðisins. 

Í málsrökum Akureyrarbæjar segir m.a. að byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni  sé veitt með vísan til gildandi deiliskipulags norðurhluta miðbæjarins sem samþykkt hafi verið af bæjarstjórn Akureyrar 17. ágúst 1996 og staðfest af Skipulagsstjórn ríkisins 23. október sama ár.  Samkvæmt deiliskipulaginu sé heimilt að byggja til viðbótar innan byggingarreits á umræddum skipulagsreit milli Laxagötu og Hólabrautar allt að 1157 m2 að brúttólatarmáli án þess að farið sé upp fyrir heimilað nýtingarhlutfall alls reitsins, sem sé 0,7.  Núverandi byggingarmagn á reitnum sé 2940 m2 og sé nýtingarhlutfall hans því um 0,5 en heimilað nýtingarhlutfall reitsins samkvæmt gildandi deiliskipulagi sé 0,7. 

Byggingafélagið Hyrna ehf. átti lægsta tilboð í framkvæmdir við viðbyggingu Vínbúðarinnar en tilboðin voru opnuð í desember sl. Alls bárust átta tilboð í verkið og var kostnaðaráætlun rúmar 77,8 milljónir króna. Hyrna bauð um 68,6 milljónir króna í verkið, eða 88% af kostnaðaráætlun.

Nýjast