Byggðakvóti til Hríseyjar og Grímseyjar

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagt fram til kynningar bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Þar kemur fram að 102 þorskígildistonn eru vegna Hríseyjar og 15 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.  


Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 18. janúar nk.

Nýjast