Bundið verði í lög hvaða þjónusta skuli vera á hverju landsvæði
Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn Landsbyggðarinnar lifi. Þar segir ennfremur: "Lýst er þungum áhyggjum yfir stefnuleysi stjórnvalda í uppbyggingu og rekstri opinberrar þjónustu. Nauðsynlegt er að sett verði skýr stefna um hvaða þjónusta skuli vera á hverju landsvæði fyrir sig og settur verði skýr lagarammi utan um þá þjónustu með það að markmiði að fjármagnið nýtist sem best til hagsbóta fyrir íbúa landsins alls. Það er ólíðandi að fjárlög sem kynnt eru í lok hvers árs og eins og nú síðast voru samþykkt í desember séu stefnumótandi fyrir lífsafkomu heilu byggðarlaganna og geti breytt aðstæðum þeirra sem þar búa í einu vetfangi.
Það er ekki ásættanlegt að móta í raun stefnuna til eins árs í senn. Þessi stutti tími skapar hættu á skammtímasparnaði sem hugsanlega myndar kostnað til lengri tíma vegna uppsafnaðra fjárfestinga- og þjónustuþarfa. Móta þarf langtímastefnu um opinbera þjónustu þar sem litið er á heildarrekstarrkostnað opinberrar þjónustu yfir lengra tímabil.
Óöryggi um framtíð byggðarlaga og þar með þeirra sem þar búa dregur úr þeim allan kraft m.a. til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Hlutverk fjárlaga á að vera að sjá til þess að stefnu stjórnvalda sé framfylgt, en ekki að móta hana. Fjárlög ársins 2011 bera þess ljósan vott að stjórnvöld hafa ekki mótað nokkra framtíðarstefnu um hlutverk og umfang þeirrar þjónustu og starfsemi sem ríkið á að veita og það er ekki á nokkurn hátt ásættanlegt að svo verði áfram."