Bryndís bætti eigið Íslandsmet

Bryndís Rún Hansen.
Bryndís Rún Hansen.

Sundkonan Bryndís Rún Hansen frá Akureyri setti nýtt Íslandsmet í 50 m flugsundi þegar hún synti á 27,41 sekúndu á móti í Amsterdam í Hollandi. Hún bætti sitt eigið met um 24/100 úr sekúndu. Bryndís, sem keppir fyrir Bergensvömmerne í Noregi, keppti í alls fimm greinum á mótinu og var nálægt sínum bestu í öllum greinum. Bryndís mun keppa á norska meistaramótinu um helgina og á Íslandsmeistaramótinu um miðjan apríl.

 

Nýjast