Bretar valda usla

Stefnt er að frumsýningu um miðjan október.
Stefnt er að frumsýningu um miðjan október.

Leikfélag Hörgdæla æfir nú af fullum krafti leikritið Verksmiðjukrónikan eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur. Leikritið verður frumsýnt um miðjan október og gerist sagan á Akureyri  um 1940. Verkafólk á  verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu,  Bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum.  Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa  t.d. á ungu stúlkurnar og Bretaþvottur er ekki öllum að skapi.

Um tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og margar skemmtilegar og sérstakar persónur líta þarna dagsins ljós.  Leikritið byggir á ýmsum atburðum sem þær stöllur hafa lesið eða heyrt um en margt er fært í stílinn.  Leikritið er ekki sagnfræðileg  heimild og er leikstjórn í höndum Sögu Jónsdóttur.

 

Nýjast