Deildarstjóri á leikskólanum Naustatjörn á Akureyri er ósátt við þá reglu skólans að börn starfsmanna fái ekki pláss á leikskólanum. Deildarstjórinn óskaði eftir því á fundi skólnefndar að málið yrði tekið fyrir og fjallað um réttmæti þeirrar reglu. Skólanefnd gerir hins vegar ekki athugasemdir við þá reglu sem um ræðir, enda hefur verið sýnt fram á að hún brýtur ekki í bága við lög og almennar reglur um starfsmannamál, segir í bókun.