Framsýn- stéttarfélag hefur sent frá sér ályktun, þar sem félagið skorar á borgarstjórn og skipulagsyfirvöld í Reykjavík að tryggja að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Markmiðið verði að tryggja tilvist miðstöðvar innanlandsflugs í næsta nágrenni við helstu heilbrigðis-, mennta- og stjórnsýslustofnanir landsins. Ljóst er að flugvöllurinn gegnir veigamiklu hlutverki í samgöngumálum þjóðarinnar, ekki síst er varðar aðgengi fólks utan höfuðborgarsvæðisins að Hátæknisjúkrahúsum. Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn. Almannahagsmunir krefjast þess að friður skapist um flugvöllinn í stað þeirrar miklu óvissu sem verið hefur um framtíð vallarins samkvæmt skipulagi Reykjavíkurborgar. Í gegnum tíðina hefur verið byggð upp opinber þjónusta á höfuðborgarsvæðinu fyrir almannafé, ekki síst af landsbyggðinni. Borgarstjórn Reykjavíkur ber skylda til að veita íbúum landsbyggðarinnar aðgengi að þjónustunni með sem bestum hætti. Lokun flugvallarins í Vatnsmýrinni er ekki leiðin til þess, segir ennfremur í ályktun Framsýnar.