Bóluefni frá Pfizer væntanlegt á Norðurland á morgun

Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Mynd/Þorgeir Baldursson.
Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Mynd/Þorgeir Baldursson.

Gert er ráð fyrir að næstu skammtar af Pfizer bóluefninu berist á Norðurlandið á morgum, fimmtudaginn 21. janúar en þá verða þeir sem eru í dagdvöl, sambýlum og í heimahjúkrun bólusettir ásamt því heilbrigðisstarfsfólki í framlínu sem ekki var bólusett síðast. Þetta kemur fram á vef HSN.

Hægt verður að byrja á því að bólusetja einstaklinga í elsta aldurshópnum og verður bólusett eftir því sem bóluefni berst. Bólusetningar með seinni skammtinum af Pfizer bóluefninu standa nú yfir á umdæmissvæði HSN fyrir einstaklinga í fyrsta forgangshópi, þ.e. íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimilum og heilbrigðisstarfsfólki í framlínu.

Á vef HSN segir að bólusetningar gangi vel og ánægjulegt sé að sjötti skammturinn næst að jafnaði úr hverju glasi sem nýtist þá til að bólusetja fleiri einstaklinga.

Allir einstaklingar fá boð um þiggja bólusetningu eftir forgangi og þeim uppgefinn tími og staðsetning.


Athugasemdir

Nýjast