Blýanturinn stakkst í gegnum lófann

Farið eftir blýantinn sést glögglega/mynd þröstur ernir
Farið eftir blýantinn sést glögglega/mynd þröstur ernir

„Ég var í dönsku tíma og þurfti að fara upp á borð til að kveikja á skjávarpa. Þegar ég hoppaði niður, lagði ég vinstri höndina ofan á blýantinn sem stóð upp úr yddara. Blýanturinn hafði verið yddaður báðum megin og hann stakkst einfaldlega í gegnum lófann á mér.“ Þannig lýsir Rökkvi Rögnvaldsson, nemandi í 10. bekk Brekkuskóla á Akureyri, óvenjulegri uppákomu í síðustu viku. Hann segist ekki hafa fundið mikið til, en sjokkið hafi verið mun meira. „Þegar ég tók eftir því að blýanturinn stóð í gegnum lófann var mér frekar brugðið. En skólafélagarnir og kennarinn voru eiginlega í meira sjokki.“

Kaupir næst blýant með strokleðri

Þar sem ekkert blæddi úr lófanum, héldu margir að um grín væri að ræða. „Ég fór t.d. í félagsmiðstöðina daginn eftir atvikið og þá sögðu allir: Ha? Gerðist þetta í alvörunni?,“ segir Rökkvi og Rögnvaldur, faðir hans bætir við: „Vinur okkar kommentaði á þetta og sagði að ef við hefðum sett smá blóð í lófann hefði þetta kannski verið raunverulegt.“ Rökkvi segist hafa lært sína lexíu eftir uppákomuna. „Ég hugsa að ég kaupi mér næst blýant með strokleðri öðrum megin. Þá er minni hætta á að ég yddi báða enda.“

Nánar er rætt við Rökkva í prentútgáfu Vikudags. Einnig er rætt við föður hans, Rögnvald Rögnvaldsson

throstur@vikudagur.is

Nýjast