Björn ráðinn til KEA

Björn Gíslason.
Björn Gíslason.

Björn Gíslason hefur verið ráðinn til starfa hjá KEA en hann mun hafa umsjón með sérhæfðum fjárfestingum fyrirtækisins. Björn er 40 ára gamall sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri en hann er að auki með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Björn hefur hlotið löggildingu sem verðbréfamiðlari og hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Stefnu á Akureyri, en þar áður starfaði hann hjá Íslenskum verðbréfum sem sjóðstjóri sérhæfðra fjárfestinga. Björn hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja á liðnum árum, segir í tilkynningu frá KEA.

 

Nýjast