Björgunarsveitir sóttu erlenda ferðamenn í sjálfheldu

Myndin tengist fréttinni ekki beint. / landsbjorg.is
Myndin tengist fréttinni ekki beint. / landsbjorg.is

Björgunarsveitir frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri voru kallaðar út í nótt til að aðstoða við björgun á erlendu pari sem hafði lent í sjálfheldu í Nesskriðum við austanverðan Siglufjörð

Parið hafði samband við Neyðarlínuna á tólfta tímanum í gærkvöld og óskaði aðstoðar. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Parið hafði komið fótgangandi úr Héðinsfirði og ætluðu til Siglufjarðar. Á þessu svæði er bratt fjalllendi niður í sjó og aðkoma að fólkinu því afar erfið. Lögreglumenn á Tröllaskaga ákváðu því að óska eftir aðstoð björgunarsveita.

„Björgunaraðilar voru fluttir á bátum að fjallinu. Þar var notaður dróni til að kanna aðstæður og velja uppgönguleið. Aðstæður reyndust vera það erfiðar að íhugað var að fá þyrlu til aðstoðar. Þó var ákveðið að reyna landleiðina fyrst. Þá tók við erfið klifur og línuvinna og komust fyrstu menn að fólkinu um kl. 2 í nótt. Það var svo um kl. 5 sem komið var með fólkið að landi á Siglufirði. Um er að ræða 35 ára karl og 31 árs konu. Þau voru ómeidd en mjög brugðið eftir þessa erfiðu lífsreynslu. Hér bættist við enn eitt verkefnið þar sem búnaður, þjálfun og reynsla okkar frábæru björgunarsveita færa fólk heilt heim úr háska,“ segir í tilkynningunni.

Alls tóku 30-40 björgunarsveitarmenn þátt í aðgerðinni ásamt lögreglu. /epe

Nýjast