26. desember, 2015 - 17:01
Fréttir
Mynd úr safni
Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út fyrir ríflega klukkustund til að aðstoða sjúkraflutningamenn við að sækja sjúkling á bæ í Hörgárdal. Mikil ófærð var á veginum heim að bænum. Verkið gekk vel og var sjúklingurinn fluttur með björgunarsveitabílnum í sjúkrabílinn þar sem hann beið við þjóðveginn.