Bjartmar og lýðveldið

Bjartmar Guðlaugsson.
Bjartmar Guðlaugsson.

Bjartmar Guðlaugsson heldur tónleika á Græna hattinum í kvöld, föstudag kl. 22:00. Þann 1. desember verður íslenska lýðveldið sjötugt og af því tilefni ætlar Bjartmar, sem er aðeins yngri en lýðveldið, að halda tónleika þar sem hann rýnir í þessi 70 ár og skoðar lífið sitt í samhengi við þau á sinn sérstaka og skemmtilega hátt. Textarnir hans fjalla að miklu leyti um persónulega reynslu hans og upplifun. Á tónleikunum segir hann sögurnar á bak við texta laganna sem hann flytur í tímaröð í gegnum lýðveldissöguna. 
 
Bjartmar röltir m.a. um ímyndað þorp þar sem skrautlegar persónur búa, t.d. þeir Sumarliði og Fúll á móti. Tónleikagestir fá m.a. að kynnast fleirum úr fjölskyldum þeirra, persónum sem hafa dúkkað upp í textum Bjartmars, án þess að fólk hafi áttað sig á tengslum þeirra við þessa merku menn.

Nýjast