Bilun stofnlögn hitaveitu
Bilun er í stofnlögn hitaveitu sem fæðir efra Gerðahverfið á Akureyri. Verið er að garfa niður á lögnina og
undirbúa viðgerð. Taka þarf vatn af hverfinu á meðan á viðgerðinni stendur. Reikna er með að vatnið verði tekið af um
kl. 14.30 en óvíst er hversu langan tíma viðgerðin tekur, en vonast er til að henni ljúki í kvöld.
Viðskiptavinum er bent á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur. Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess, segir í tilkynningu frá Norðurorku.