Biðlum til Alþingis og sveitarfélaga Íslands !
Við viljum biðla til ríkisstjórnar og sveitarfélaga að setja meiri pening í meðal annars forvarnir og fræðslu um geðraskanir. Það þarf að skoða nýjar nálganir og breytingar í kerfinu og nýta sér reynslu fagmanna og notenda í bata til að hjálpa fólki með geðraskanir og fjölskyldum þeirra. Forvarnir og fræðsla er mikilvægt afl yrir samfélagið til að fólk geri sér grein fyrir hvað er að vera með geðröskun og það eigi að vera óhætt að leyta sér aðstoðar eins og með hvern annan sjúkdóm ! Samvinna er nauðsynleg til að ná árangri og bjarga mannslífum. Notendur í bata er mikilvæg auðlind sem ætti að nota meira þegar verið er að móta stefnu í geðheilbrigðiskerfinu.
Kominn tími á að opna umræðu um geðraskanir ,fordóma og sjálfsvíg.
Það vill engnn vera veikur, sama hvaða veiki það er. Lítið sjálfstraust og sjálfsvirðing, taugakerfið brothætt, skömm, sjálfsvígshugsanir, sjálfshatur og að vera uppstökkur. Allt eru þetta algengir fylgikvillar geðraskana. En af hverju eru svona miklir fordómar gagnvart fólki með geðraskanir? Er það umfjöllun fjölmiðla sem hefur svona mikil áhrif? Eru það bandarískar bíómyndir sem sýna óraunverulegt ástands fólks með geðraskanir? Ef fólk væri með krabbamein væri fólk með fordóma gagnvart því? Nei það vill enginn vera veikur og það gildir jafnt yfir fólk með geðræn veikindi og önnur veikindi! Vanþekking er enn mikil í þjóðfélaginu, stimplun og fordómar verða oft til þess að fólk leita sér ekki aðstoðar. Svo fólk geri sér grein fyrir alvarleika málsins að þá eru það 3-4 sem taka sitt eigið líf á mánuði sem eru að glíma við geðraskanir . Árið 2013 eru það 49 utan við þá sem reyna og eru í hættu. Hvað þarf til að stórnvöld átti sig ?
Samvinna stjórnvalda, fagmanna og notenda í bata.
Með því að opna þessa umræðu og nýta sér sameiginlega reynslu fagmanna og notenda í bata af geðröskunum væri hægt að bjarga mörgum mannslífum og afleiðingum þeirra. Meðal annars með því að leggja almennilegan pening í forvarnir og fræðslu um geðraskanir. Í félög sem eru að vinna í þessum geira svo þau geti sinnt þessum málum. Opinberar stofnanir sem vinna í þessum geira ættu að sjá hag sinn í að ráða notendur í bata til starfa. Það er mikill fjársjóður í notendum í bata sem er oft vanmetinn því miður. Það þarf nýja nálgun og hvernig væri þá að nýta sér reynslu notenda sem fæst ekki í bókum heldur af persónulegri reynslu. Að fagmenn og notendur í bata vinni saman á jafningjagrunni gæti hjálpað mörgum og bjargað mörgum mannslífum til að öðlast betra líf. En til þess þarf aðeins vilja til að breyta en ekki hanga í sama farinu.
Eymundur L. Eymundsson.
Leó Sigurðsson.