"Með nýsamþykktu miðbæjarskipulagi Akureyrar var brotið blað í vinnslu skipulagstillögu í bænum. Allir flokkar í bæjarstjórn tóku virkan þátt í vinnunni og hún fór ekki bara fram í skipulagsnefnd heldur komu allir bæjarfulltrúar að verkinu," skrifar Eva Reykjalín Elvarsdóttir.
"Það er mat okkar í L-listanum að vel hafi tekist til með nýja miðbæjarskipulagið. Þar ræður ekki síst hve margir komu að verkinu og hve samvinnan var góð. Sameiginleg sýn allra var að skapa vinalegan miðbæ þar sem eftirsóknarvert yrði að búa, stunda rekstur og sækja þjónustu en ljóst er að núverandi ástand getur ekki varað mikið lengur."