Bergþór og Paul opna samsýningu í Bergi á Dalvík
Bergþór Morthens (f. 1979) útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2004 og hefur síðan unnið ötullega að
list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar jafnt hér á landi sem erlendis.
Paul Lajeunesse (f. 1976) er bandarískur myndlistamaður sem dvaldi á Íslandi sem gestalistamaður SÍM og í Herhúsinu á Siglufirði
árin 2007 til 2008. Á þeim tíma vann hann að landslagsmálverkum sem hann tók svo með sér aftur til Bandaríkjanna. Þar fullvann
hann verkin og sýnir nú afraksturinn á Íslandi.
Bergþór málar portrett myndir unnar með blandaðri tækni bæði á striga og plötur, verkin eru ákveðin alkemía þar sem
hann blandar saman ólíkum efnum og verður útkoman oft óvænt. Paul Lajeunesse málar hinsvegar landslag á mjög fínlegan og
realískan hátt.