Bautinn hagnaðist um 38 milljónir

Guðmundur Karl Tryggvason.
Guðmundur Karl Tryggvason.

Hagnaður varð á rekstrarfélagi veitingastaðarins Bautans á Akureyri sem nam 38 milljónum sl ár. Hagnaðurinn jókst verulega á milli ára en hann var 16,5 milljónir króna árið 2013. Þetta kemur fram í frétt á Vísir.is. Guðmundur Karl Tryggvason, eigandi Bautans, segir á vef Vísis að gengislán fyrirtækisins hafi verið leiðrétt á síðasta ári sem skýri aukinn hagnað að hluta.

Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld námu 9,2 milljónum á síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 45 milljónum á síðasta ári en nam 22 milljónum árið 2013. Eigið fé félagsins nemur 93 milljónum en skuldir 71 milljón og er eiginfjárhlutfall þess því 57 prósent. Handbært fé frá rekstri jókst um 7,3 milljónir króna á milli ára og nam í árslok 57,7 milljónum króna.

Nýjast