Barnarúm innkölluð vegna hengingarhættu
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að setja á sölubann og innkalla Basson Baby-barnarúm af gerðinni Julia frá versluninni Ólavíu og Oliver. Hönnun rúmanna fela í sér hengingarhættu fyrir börn.
Í tilkynningu frá Neytendastofu kemur fram að verslunin hafi áður innkallað rúmið vegna hönnunargallanna. Auk hengingarhættunnar voru gallaðar læsingar á hliðum rúmsins.
„Þá var braut sem notuð var til að færa hliðina upp og niður þannig hönnuð að barn gat notað hana sem fótfestu og klifrað upp úr rúminu auk þess sem hætta var á að börn gætu klemmt sig. Verslunin ætlaði að láta lagfæra rúmin svo að þau væru í lagi. Neytendur voru hvattir til að hætta strax notkun barnarúmanna og hafa samband við Ólavíu og Oliver sem höfðu selt rúmin frá árinu 2008,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur einnig fram að verslunin hafi ekki getað veitt Neytendastofu fullnægjandi upplýsingar um það hvernig staðið var að lagfæringu á þeim rúmum sem höfðu verið seld. Ekki var heldur sýnt fram á að rúmin væru örugg eftir lagfæringu.
Neytendastofa Því taldi óhjákvæmilegt að leggja formlegt bann við sölu og afhendingu á vörunni og gera Ólavíu og Oliver að afturkalla hana frá neytendum og endurgreiða þeim kaupverðið.
„ Foreldrar eiga að geta treyst því að börnin séu örugg í barnarimlarúmum. Þetta er einn af fáum stöðum þar sem umsjónarmenn barna eiga að geta skilið þau eftir án eftirlits í einhvern tíma og er það ein af ástæðum þess að miklar kröfur eru gerðar varðandi öryggi rúma,“ segir jafnframt í tilkynningunni. /epe