Sýning Baldvins Ringsted, Snarstefjun, annar hluti: Bárujárnsárin, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn kemur þann 13. febrúar kl. 15 í Vestursal. Sýningin er framhald á vinnu Baldvins með tónlist og tungumál sem og tilraunir með strúktúr og afbyggingu í málverki. „Mikilvægur hluti sköpunarferlisins er þegar ég set mér ramma eða einhvers konar reglur í upphafi vinnunnar, líkt og vanalega er gert í snarstefjun (e. improvisation) í jass- og blústónlist. Ferlið á sér líka sterka skírskotun í tónverkum nútímatónskálda á borð við John Cage og Steve Reich,“ segir Baldvin um sýninguna. Baldvin Ringsted vinnur með ýmis efni og miðla; innsetningar, málverk, skúlptúra, hljóð og vídeó. Hann hefur sýnt víða um heim, bæði á samsýningum og einkasýningum. Baldvin sækir efnistök verkanna oftast að einhverju leyti í þekkingu sína og reynslu af tónlist og hljóðfæraleik. Verk hans skoða annars vegar sambandið á milli hljóðs og mynda og hins vegar á milli sögu og strúktúrs. Sýningin stendur til 25. febrúar og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17.