Starfsmenn FSA eru óánægðir með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun sjúkrahússins og einfalda þarf skipulagið og styrkja framkvæmdastjórn. Þá þarf að móta nýja stefnu fyrir sjúkrahúsið. Landlæknir þarf að gera úttekt á öryggi sjúklinga vegna viðvarandi læknaskorts á spítalanum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar en þar er fjallað um skipulag, stefnu og stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri (áður Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri). Fram kemur að samkvæmt viðhorfskönnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal starfsmanna sjúkrahússins ríkir óánægja með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun þess, m.a. með starfshætti framkvæmdastjórnar, en í henni sitja fjórir æðstu stjórnendur stofnunarinnar.
Tekið skal fram að auk könnunarinnar byggði úttekt Ríkisendurskoðunar á viðtölum við fyrrverandi og núverandi starfsmenn og greiningu
ýmissa gagna. Starfsemi sjúkrahússins fer nú fram í 38 einingum og eru millistjórnendur um 50 en starfsmenn samtals um 600.
Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að fækka einingum með því að sameina þær. Stofna ætti nokkur kjarnasvið og setja
framkvæmdastjóra yfir hvert þeirra sem jafnframt sæti í framkvæmdastjórn sjúkarhússins. Með þessu móti telur
Ríkisendurskoðun að unnt sé að styrkja framkvæmdastjórnina. Einnig sé mikilvægt að hún verði sýnilegri
starfsmönnum en verið hefur og bregðist hratt við ábendingum og erindum frá þeim.
Ríkisendurskoðun telur að móta þurfi nýja stefnu og framtíðarsýn fyrir sjúkrahúsið með aðgerðaáætlun og árangursmælikvörðum. Þá sé brýnt að velferðarráðneytið ákveði framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi, m.a. verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana á svæðinu.
Í skýrslunni kemur fram að þegar sé hafin vinna innan sjúkrahússins við að móta nýja stefnu. Fram kemur að skortur er á læknum á sjúkrahúsinu og að á sumum deildum starfi svo fáir læknar að öryggi sjúklinga kunni að vera ógnað. Vegna þessa hvetur Ríkisendurskoðun landlæknisembættið til að gera úttekt á öryggi sjúklinga á sjúkrahúsinu.