Bæjarstjórn samþykkir breytingu á miðbæjarskipulagi Akureyrarbæjar

Tölvulíkan af fyrirhuguðu miðbæjarskipulagi.
Tölvulíkan af fyrirhuguðu miðbæjarskipulagi.

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær að auglýsa endurskoðaða tillögu að breytingu á miðbæjarskipulagi. Gerðar hafa verið breytingar til að koma til móts við athugasemdir og umsagnir, auk þess sem brugðist hefur verið við niðurstöðu vindgreiningar, segir á vef Akureyrarbæjar.

Drög að deiliskipulagsbreytingu voru kynnt í desember fyrir svæði sem afmarkast við Glerárgötu, Kaupvangsstræti, Skipagötu, Hofsbót og Strandgötu. Haldinn var rafrænn íbúafundur, auk þess sem kynningargögn voru gerð aðgengileg á heimasíðu Akureyrarbæjar. 

Uppbyggingu skipt í tvo áfanga

Athugasemdir og umsagnir sem bárust í kjölfarið voru hafðar til hliðsjónar við frekari vinnslu tillögunnar. Helsta breytingin á upphaflegum áætlunum felur í sér að áfangaskipta verkefninu, enda er um að ræða mjög umfangsmikla uppbyggingu í miðbæ Akureyrar.

Stefnt er að því að í fyrri áfanga verði byggðar upp lóðir við Hofsbót 1 og 3 ásamt aðalgönguás á milli Skipagötu og Glerárgötu. Í seinni áfanga yrði þá byggt á lóðum við Skipagötu 11 og 13. Þetta þýðir að 120 af 190 almennum bílastæðum á svæðinu verða á sínum stað þar til uppbyggingu á lóðum við Hofsbót 1 og 3 er lokið. Fylgst verður náið með nýtingu bílastæða næstu árin og áhrif þeirra metin á þjónustu og verslun í miðbænum.

Deiliskipulagsbreytingin verður auglýst formlega á næstu dögum og þá hafa íbúar og aðrir hagsmunaaðilar sex vikur til þess að gera athugasemdir áður en hún verður tekin aftur fyrir á vettvangi sveitarfélagsins.


Athugasemdir

Nýjast