Bæjarstjórn gerir athugasemdir við fjárlagafrumvarpið
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga 2017 sem nú liggur fyrir Alþingi. Bæjarstjórn lýsir furðu sinni á því að í frumvarpinu er ekki tekið tillit til nýrrar samgönguáætlunar sem samþykkt var samhljóða á Alþingi 12. október sl.
Í bókun sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi í gær kemur fram að bæjarstjórn telji það algjörlega óviðunandi að ekki sé gert ráð fyrir fjármagni í mikilvæg verkefni nú þegar er byrjað á. Sem dæmi má nefna kaup á nýjum hafnsögubáti fyrir Hafnasamlag Norðurlands en búið er að samþykkja tilboð í smíði bátsins. Ekki er heldur gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka gerð Dettifossvegar sem allir eru sammála um að sé lykilframkvæmd í uppbyggingu innviða fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra. Þá er heldur ekki gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka gerð flughlaðs við Akureyrarflugvöll sem er mikilvægt verkefni vegna flugöryggis yfir Íslandi og atvinnuuppbyggingar á Akureyri.
„Það er algjörlega óviðunandi að ekki sé staðið við fyrri ákvarðanir Alþingis um að fjármagna þessar framkvæmdir í fyrirliggjandi frumvarpi til fjárlaga 2017. Hér er um að ræða verkefni sem nú þegar er byrjað á og langt komin í tilboðsferli og algjörlega óásættanlegt að ekki sé tekið tillit til í frumvarpinu,“ segir í bókuninni.
Bæjarstjórn samþykkti framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.