Hið nýja félag, sem stofnað er um reksturinn, fær nafnið Útgerðarfélag Akureyringa og er það von bæjarstjórnar að það muni bera nafn með rentu. Mál er að deilum um fiskveitistjórnunarkerfið ljúki með samkomulagi og málamiðlun. Úrbætur í atvinnu- og kjaramálum við núverandi aðstæður þola ekki bið. Bæjarstjórn hvetur stjórnvöld til þess að skapa sjávarútvegnum traustan rekstrargrundvöll og öryggi til framtíðar. Það er ein af mikilvægum forsendum sóknar í atvinnumálum við Eyjafjörð og í sjávarbyggðum landið um kring," segir ennfremur í ályktun bæjarstjórnar.