Bæjarráð samþykkti tillögu skipulagsnefndar varðandi Dalsbraut

Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, tillögu skipulagsnefndar vegna deiliskipulags Dalsbrautar. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn, að skipulagslýsing vegna deiliskipulagsins verði kynnt almenningi, leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna og framkvæmdin verði tilkynnt í samræmi við lög. Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar.  

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram svohljóðandi tillögu á fundi bæjarráðs í morgun, sem var felld með þremur atkvæðum L-lista: "Í ljósi þess að L-listinn hefur svikið stóra kosningaloforðið um að leggja Dalsbraut að hluta til í stokk tel ég eðlilegt og nauðsynlegt að nýjar hönnunarforsendur götunnar komi fyrir bæjarstjórn til umræðu og afgreiðslu, enda hér um algjöra kúvendingu að ræða af hálfu L-listans.  Þegar síðan við bætist að þær hönnunarforsendur sem nú liggja fyrir bæjarráði eru mjög óljósar er varða veigamikil atriði s.s. hámarkshraða og hljóðvist er enn mikilvægara að umræða um þær fari fram í bæjarstjórn í heyranda hljóði þannig að skýr afstaða allra bæjarfulltrúa komi fram um skipulagsforsendur götunnar. Hér er um gamalt og erfitt deilumál að ræða sem oft hefur ratað á bæjarstjórnarfundi og tíðum verið kosningamál, því er það óásættanlegt að fyrirliggjandi skipulagsforsendur séu afgreiddar af innan við helmingi kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn. Þá liggur heldur ekki fyrir hvernig bærinn hyggst koma til móts við íþróttafélagið KA vegna þeirrar skerðingar og breytinga sem verða á þeirra svæði með tilkomu Dalsbrautar. Ég legg því til að afgreiðslu á þessari skýrslu um skipulagsforsendur Dalsbrautar verði vísað til fyrsta fundar bæjarstjórnar eftir sumarfrí til umræðu og afgreiðslu."

Ólafur lagði jafnframt fram tillögu um að hámarkshraði á væntanlegri Dalsbraut milli Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis verði 30 km/klst. Sú tillaga var einnig felld með þremur atkvæðum L-lista.

Meirihluti bæjarráðs samþykkti tillögu skipulagsnefndar, sem áður segir en Ólafur Jónsson sat hjá við greiðslu.

Hermann Jón Tómasson S-lista lagði fram eftirfarandi bókun: "Dalsbraut er mikilvæg samgöngubót fyrir íbúa Akureyrar, sérstaklega íbúa í nýjasta hverfi bæjarins, Naustahverfi. Ég styð þess vegna hugmyndir um að hefja lagningu götunnar á næsta ári en legg höfuðáherslu á að horft verði til öryggis gangandi vegfaranda við skipulagningu hennar."

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi bókun: "Í ljósi þess að verkfræðiúttekt frá í vor sýnir að ekki sé þörf á lagningu Dalsbrautar vegna umferðarþunga í fyrirséðri framtíð, en aftur á móti að lagning götunnar muni létta umferð á öðrum nærliggjandi götum og stytta vegalengdir og eins mynda heilsteyptara umferðarkerfi, tel ég eðlilegt að hámarkshraði á Dalsbraut milli Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis verði 30 km/klst í stað 50 km/klst. Ég bendi á að mestur þungi umferðarinnar mun koma úr Naustahverfi þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Flestir þeir íbúar sem hafa talað fyrir nauðsyn þess að leggja Dalsbraut hafa líka aðallega bent á mikilvægi þess að stytta leiðir og spara eldsneyti en ekki að sérstök þörf sé á að leysa umferðarþunga. Með því að færa þennan liðlega 1000 m langa spotta í 30 km/klst hámarkshraða næst aukið umferðaröryggi, betri hljóðvist og góður möguleiki á almennri sátt um lagningu götunnar. Ég tel líka nauðsynlegt að samningar við íþróttafélagið KA hefðu legið fyrir á þessu stigi  varðandi framtíðar fyrirkomulag á þeirra íþróttasvæði sem óneitanlega skerðist við þessa framkvæmd og setur íþróttastarf á svæðinu í ákveðið uppnám næstu árin. Ég get því ekki samþykkt þessar skipulagsforsendur fyrir Dalsbraut að þessu óbreyttu."

Fulltrúar L-lista lögðu fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúar L-lista vilja benda á að hér er aðeins um skipulagslýsingu að ræða og þar kemur fram að: "Hönnunarhraði Dalsbrautar er 50 km/klst en þó er gert ráð fyrir að hámarkshraði götunnar í nánd við Lundarskóla verði 30 km/klst, a.m.k. á skólatíma."

Nýjast