Bæjarráð hvetur til sanngirnis í fjárframlögum
Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum sínum fjárframlaga til Háskólans á Akureyri sem koma fram í samþykktum tillögum fyrir 2. umræðu til fjárlaga fyrir árið 2015. Í bókun Bæjarráðs hvetur það stjórnvöld til að leiðrétta og auka framlög til skólans í endanlegu fjárlagafrumvarpi næsta árs til samræmis við hlutfallslega stærð skólans í íslensku háskólasamfélagi. Í bókuninni segir að Háskólinn á Akureyri hafi sýnt mikla ráðdeild og farið í erfiðar aðgerðir til að bregðast við skertum fjárframlögum eftir efnahagshrunið.
"Það getur því ekki talist sanngjarnt að skólinn fái ekki framlag til að viðhalda núverandi starfi né tækfæri til uppbyggingar nú þegar unnt er að bæta við heildarfjármagn í háskólum landsins, eins og fram kemur í tillögum fyrir 2. umræðu um fjárlög 2015," segir í bókun bæjarráðs.