Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistans á Akureyri er umsvifamikill kaupsýslumaður, hann rekur nokkrar ferðamannaverslanir. Á næstu dögum opnar hann listmunaverslun í Reykjavík. Hann segir að bæjarmálapólitíkin sé tímafrekt áhugamál.
Hvernig kemur bæjarapparatið þér fyrir sjónir?
Hægfara, skilvirknin í kerfinu er alltof hæg að mínu viti. Embættismannakerfið fer mikið í taugarnar á mér og ég tel nauðsynlegt að skilgreina betur hlutverk embættismanna bæjarins.
Ertu að segja að embættismenn ráði of miklu ?
Allt of miklu, allt of miklu.
Dæmi?
Ég nefni til dæmis menningarmálin, ýmsar verklegar framkvæmdir og síðast en ekki síst sjálft ráðhúsið.
Segjum að þú verðir einvaldur á morgun. Þitt fyrsta verk ?
Ég mundi senda nokkrum hátt settum embættismönnum uppsagnarbréf, ekki spurning. Farsælast væri að helstu embættismenn væru ráðnir til fjögurra ára, þá gæti bæjarstjórn ráðið til sín fólk sem er tilbúið til að vinna af heilum hug með viðkomandi bæjarstjórn.
Ætlarðu að bjóða þig fram að loknu þessu kjörtímabili ?
Ég hef ekkert spáð í það, en þetta er virkilega skemmtileg og gefandi vinna. Hún er hins vegar afskaplega tímafrek og kostnaðarsöm. En svona í alvöru, þá hef ég lítið hugað um framtíðina í þessum efnum. Fegnastir af öllum verða sjálfsagt embættismennirnir ef ég býð mig ekki fram. En við skulum sjá til.
Nánar er rætt við Sigurð í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag.
karleskil@vikudagur.is