Aukið álag á aðra starfsmenn

Stjórn hjúkrunarráðs Sjúkrahússins á Akureyri lýsir yfir áhyggjum af yfirvofandi verkfalli lækna. Ljóst er að starfsemi heilbrigðisstofnana mun raskast  og aukið álag verða á aðra starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar.  Biðlistar  munu lengjast og þjónustan versna með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir heilsu skjólstæðinga okkar.

"Þar sem skortur á hjúkrunarfræðingum og læknum  hefur blasað við innan heilbrigðiskerfisins og betri starfsaðstæður ekki í sjónmáli, vonum við að stjórnvöld sjái sér sem fyrst hag í því að koma til móts við kröfur um bætt kjör og starfsaðstæður lækna . Þannig er hægt að renna styrkari stoðum undir heilbrigðiskerfið og spyrna við fótum á þeirri niðurleið sem blasað hefur við."

Nýjast