Markmið Nýsköpunarsjóðs námsmanna er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að
ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Frá stofnun
1992 hefur sjóðurinn unnið sér nafn og gott orð fyrir vinnu mörg hundruð námsmanna og verkefna sem þeir hafa leyst af hendi fyrir tilstyrk
sjóðsins. Fjölmörg verkefni sem unnin hafa verið með styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna hafa verið fyrstu skrefin í
stórum nýsköpunarverkefnum og hafa því á endanum gefið meira af sér til samfélagsins en lagt var í þau.
Með samþykkt fjárlaga 2011 var aukinn stuðningur mennta- og menningarmálaráðuneytis við sjóðinn festur í sessi. Var fjárveiting
á fjárlögum þá hækkuð um 30 milljónir króna, úr 20 milljónum í 50 milljóna króna. Auk mennta- og
menningarmálaráðuneytis leggur Reykjavíkurborg sjóðnum til 30 milljónir króna á þessu ári. Hefur sjóðurinn
því 80 milljónir til úthlutunar árið 2011. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum rennur út 7. mars nk. og er allar frekari
upplýsingar að finna á vef Rannís, www.rannis.is.