Sama má segja um starfandi, fjöldi þeirra hefur lítið breyst frá árinu 2009 miðað við fækkun upp á 11.300 manns frá árinu 2008. Síðan reglulegar mælingar Hagstofunnar hófust árið 1991 hefur hlutfall starfandi aldrei mælst minna og atvinnuleysi meira en árið 2010. Árið 2010 var atvinnuleysi að meðaltali 9,5% í Reykjavík, 7,5% í nágrenni Reykjavíkur og 5,5% utan höfuðborgarsvæðisins.
Langtímaatvinnulausum fjölgar
Af þeim sem voru atvinnulausir árið 2010 voru að jafnaði 2.800 manns búnir að
vera atvinnulausir í 1-2 mánuði eða 20,8% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 3.700 manns verið atvinnulausir í 1-2 mánuði árið
2009 eða 28,3% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Árið 2010
höfðu um 2.800 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 20,3% atvinnulausra. Árið 2009 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur
um 900 manns eða 6,8% atvinnulausra.
Árið 2010 voru 1,6% af þeim sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1-2 mánuði en 2% árið 2009. Langtímaatvinnulausir voru 1,5% vinnuaflsins árið 2010 samanborið við 0,5% árið 2009.
Heildarvinnutími 39,2 klst. á viku
Árið 2010 var heildarvinnutími þeirra sem voru við vinnu í
viðmiðunarvikunni að meðaltali 39,2 klst., 44,7 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 23,3 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Heildarvinnutími minnkaði lítillega milli ára en var 39,5 árið 2009. Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti
Hagtíðinda um vinnumarkaðinn árin 1991 til 2010.