Átta vilja stöðu svæðisstjóra
Alls bárust átta umsóknir um stöðu svæðisstjóra á Akureyri hjá Ríkisútvarpinu, RÚVAK, en umsóknarfrestur rann út á miðnætti í gær. RÚV ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum. Framundan er vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar á starfsemi RÚV utan höfuðborgarsvæðisins. Svæðisstjóri RÚVAK mun leiða þær breytingar sem framundan eru á starfsemi RÚV á landsbyggðinni.
Umsækjendur eru eftirfarandi:
Björn Þorláksson - Ritstjóri og rithöfundur
Freyja Dögg Frímannsdóttir - Verkefnastjóri
Hulda Sif Hermannsdóttir - Verkefnastjóri viðburða og menningarmála Akureyrarstofu
Ingibjörg Ingadóttir - Framhaldsskólakennari og meistaranemi
Kristján Atli Baldursson Dýrfjörð - Sýningarstjóri
Sigurður Einarsson - Framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík
Sveinn H. Guðmarsson - Fréttamaður
Óli Örn Andreassen - Dagskrárgerðarmaður
Í starfinu felst meðal annars ábyrgð á fréttaflutningi og dagskrárgerð svæðisstöðva í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum. Ýmsar breytingar eru áformaðar, meðal annars verður lögð aukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vef RÚV. RÚV er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum en starfsfólki RÚV á landsbyggðinni hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum.
Ný yfirstjórn RÚV hefur boðað að aukin áhersla verði lögð á landsbyggðina í starfsemi RÚV. Endurskipulagning starfseminnar á Akureyri er fyrsta skrefið í þá átt.