Átökin í Framsóknarflokknum orðin opinber.

Birgir Guðmundsson
Birgir Guðmundsson

"Það hefur legið í loftinu að  Höskuldur Þórhallsson og  Sigmundur Davíð hafa ekki gengið í takt innan flokksins enda tókust þeir á um formannsembættið á sínum tíma. Nú er þetta orðið að opnum átökum sem lítið er reynt að fela – eins og sjá má af því að þeir Birkir Jón Jónsson og Sigmundur Davíð annars vegar og Höskuldur hins vegar hafa ekkert rætt þessi framboðsmál sín á milli og samtalið á sér stað í beinni útsendingu fjölmiðla,” segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vikudag.

 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins tilkynnti í gær að hann hyggðist bjóða sig fram í Norðausturkjördæmi við komandi Alþingiskosningar. Birkir Jón Jónsson varaformaður flokksins gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu, það gerir hins vegar Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður flokksins í kjördæminu  og hann vill fara fyrir framboðslistanum. Birgir Guðmundsson segir að ákvörðun formannsins um að flytja sig um set komi að sumu leyti á óvart, en að sumu leyti ekki.

Hvernig metur þú stöðu Höskuldar eftir yfirlýsigarnar í gær?

“Það vekur ekki síður athygli að með þessu er markað ákveðið rof í sögu Framsóknarflokksins og hin nýja framsókn er með þessu að gefa frá sér ákveðin skilaboð. Allir formenn flokksins  frá Ólafi Jóhannessyni– að Guðna Ágústssyni undanskildum – hafa annað hvort verið í framboði  eða flutt sig í framboð á höfuðborgarsvæðið. Það hefur verið yfirlýsing um að flokkurinn hafi viljað sækja meira þéttbýlisfylgi. Nú bregður svo við að formaðurinn fer frá höfuðborginni og í landsbyggðarkjördæmi. Það er eðlilegt að velta fyrir sér hvaða skilaboð felast í því.
 Staða flokksins hefur ekki mælst mjög sterk í Reykjavík og minningin um síðustu borgarstjórnarkosningar eru ekki uppörvandi fyrir Framsóknarmenn.  Það munu eflaust koma fram raddir um að Sigmundur Davíð hafi ekki treyst sér fram í Reykjavík hvað svo sem kann að vera til í því. Hitt er þó ef til vill meira áhyggjuefni fyrir flokkinn hvort átökin  um oddvitasætið í Norðausturkjördæmi - höfuð vígi flokksins - verði það hörð að það spilli fyrir flokknum í kosningum. Það væri þá staða sem framsóknarmenn þekkja úr sögu flokksins, en þó  sérstaklega frá Reykjavík,” segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur.

karleskil@vikudagur.is


Nýjast