"Það hefur legið í loftinu að Höskuldur Þórhallsson og Sigmundur Davíð hafa ekki gengið í takt innan flokksins enda tókust þeir á um formannsembættið á sínum tíma. Nú er þetta orðið að opnum átökum sem lítið er reynt að fela eins og sjá má af því að þeir Birkir Jón Jónsson og Sigmundur Davíð annars vegar og Höskuldur hins vegar hafa ekkert rætt þessi framboðsmál sín á milli og samtalið á sér stað í beinni útsendingu fjölmiðla, segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vikudag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins tilkynnti í gær að hann hyggðist bjóða sig fram í Norðausturkjördæmi við komandi Alþingiskosningar. Birkir Jón Jónsson varaformaður flokksins gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu, það gerir hins vegar Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður flokksins í kjördæminu og hann vill fara fyrir framboðslistanum. Birgir Guðmundsson segir að ákvörðun formannsins um að flytja sig um set komi að sumu leyti á óvart, en að sumu leyti ekki.
Hvernig metur þú stöðu Höskuldar eftir yfirlýsigarnar í gær?
Það vekur ekki síður athygli að með þessu er markað ákveðið rof í sögu Framsóknarflokksins og hin nýja framsókn er með þessu að gefa frá sér ákveðin skilaboð. Allir formenn flokksins frá Ólafi Jóhannessyni að Guðna Ágústssyni undanskildum hafa annað hvort verið í framboði eða flutt sig í framboð á höfuðborgarsvæðið. Það hefur verið yfirlýsing um að flokkurinn hafi viljað sækja meira þéttbýlisfylgi. Nú bregður svo við að formaðurinn fer frá höfuðborginni og í landsbyggðarkjördæmi. Það er eðlilegt að velta fyrir sér hvaða skilaboð felast í því.
Staða flokksins hefur ekki mælst mjög sterk í Reykjavík og minningin um síðustu borgarstjórnarkosningar eru ekki uppörvandi fyrir Framsóknarmenn. Það munu eflaust koma fram raddir um að Sigmundur Davíð hafi ekki treyst sér fram í Reykjavík hvað svo sem kann að vera til í því. Hitt er þó ef til vill meira áhyggjuefni fyrir flokkinn hvort átökin um oddvitasætið í Norðausturkjördæmi - höfuð vígi flokksins - verði það hörð að það spilli fyrir flokknum í kosningum. Það væri þá staða sem framsóknarmenn þekkja úr sögu flokksins, en þó sérstaklega frá Reykjavík, segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur.