Atkvæðagreiðsla um verkföll hafin

Komi til verkfalls mun það hafa víðtæk áhrif á atvinnulífið.
Komi til verkfalls mun það hafa víðtæk áhrif á atvinnulífið.

Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir sextán aðildarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands hófst í morgun. Um er að ræða rafræna kosningu, sem lýkur á miðnætti 30. mars nk. Rúmlega 10.000 eru á kjörskrá, þar af 2.280 félagsmenn í Einingu-Iðju. Gert er ráð fyrir að niðurstaðan liggi fyrir 31. mars, rúmri viku áður en aðgerðirnar eiga að hefjast. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, hvetur þá sem rétt hafa til að kjósa að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.

„Samtök atvinnulífsins vilja ekkert við okkur tala og þess vegna var ákveðið að slíta viðræðum og boða til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir. Vinnuveitendur halda fast við þá stefnu að laun almenns verkafólks hækki ekki um meira en 3-4%. Í krónum talið þýðir það hækkun grunnlauna um 6.000-9.500 kr. Slíkt er algerlega óviðunandi og var samninganefnd Starfsgreinasambandsins því knúin til að slíta viðræðunum og hefja undirbúning aðgerða. Komi til verkfallsaðgerða er ábyrgðin alfarið vinnuveitenda. Samstaða er okkar beittasta vopn og ég hvet alla sem eru með atkvæðisrétt til að kjósa. Fyrir samninganefndina er nauðsynlegt að baklandið sé traust," segi Björn.

Skrifstofur Einingar-Iðju opnar lengur

Eins og fyrr segir verður kosið með rafrænum hætti. Skrifstofur Einingar-Iðju verða því opnar lengur en venjulega, þar sem veittar verða upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Þeir félagsmenn sem hafa ekki aðgang að tölvu geta komið og kosið á skrifstofunum. Skrifstofurnar vera opnar eins og hér segir:

Akureyri til kl. 20:00 – 23. til 26. mars og 30. mars.

Dalvík til kl. 18:00 - 23. til 26. mars og 30. mars.

Fjallabyggð til kl. 18:00 - 24. til 26. mars og 30. mars.

Allir staðir - Laugardagur 28. mars milli kl. 13 og 17 

Nýjast