Átaksverkefni um eyðingu kerfils umfangsmeira en áætlað var

Á fundi umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar nýlega var rætt um átaksverkefni um eyðingu kerfils. Grettir Hjörleifsson mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. Verkefnið sl. ár varð mun meira en áætlað hafði verið og fór kostnaður um milljón króna fram yfir áætlun. Helgast það af því að kerfillinn var kominn mun víðar en áætlað hafði verið og eitrað var á um 70 bæjum auk vegsvæða.  

Eitrið kostaði 944 þús. kr. að viðbættum vsk. Þá má geta þess að landeigendur lögðu um 60 tíma vinnuframlag í verkefnið. Umhverfisnefnd átelur að hafa ekki verið gert viðvart um að verkefnið væri að fara fram úr áætlun, eins og segir í bókun nefndarinnar. Ekki verði hafist handa næsta vor nema gerður verði nýr samningur þar sem skýrar reglur komi fram um verklag, skil á skýrslum og reikningum. Telur nefndin samt sem áður að halda þurfi áfram að eitra í öllu sveitarfélaginu ef vinna eigi bug á kerflinum. Óskað var eftir skýrslu frá verktaka um hvar hafi verið eitrað og þá hversu oft á hverjum stað og mat á það hvernig til hafi tekist.

Nýjast